PÁSKAKVEÐJA
Kæra félagsfólk, Stjórn Lífsins færir ykkur bestu óskir um velfarnað í lífi og starfi á þessum krefjandi tímum! Gleðilega páska og við horfum fram til vorkomunnar!
Sunnan yfir sæinn breiða, sumarylinn vindar leiða.
Draumalandið himinheiða, hlær – og opnar skautið sitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!
Gakk þú út í græna lundinn, gáðu fram á bláu sundin.
Mundu, að það er stutt hver stundin, stopult jarðneskt yndi þitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!
Allt hið liðna er ljúft að geyma, láta sig í vöku dreyma.
Sólskinsdögum síst má gleyma, – segðu engum manni hitt!
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!
(Lag: Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum)